föstudagur, janúar 30, 2009

Flúr

Ég er með skriljón fiðrildi og eitt stk stóran stein í maganum akkúrat núna. Ég á tíma kl 14 á Íslensku húðflúrstofunni. Það er ansi langt síðan að ég vissi að ég vildi fá mér flúr, það tók langan tíma að mana mig uppí að fá mér slíkt. Þegar mér loksins datt í hug að fá mér rós var ekki aftur snúið. Pantaði tíma fyrir 2 vikum síðan og er búin að eyða ómældum tíma í að hugsa um hvar væri best að setja það. Margt sem þarf að hafa í huga þegar staðsetningin er ákveðin og í gær var ég ekki enþá búin að ákveða mig en í morgun vaknaði ég og var búin að ákveða mig. Set inn mynd þegar það er búið að gróa og orðið flott :o)

2 vinir:

Nafnlaus sagði...

Bíð spenntur eftir myndinni.
Pabbi.

Nafnlaus sagði...

Já ég líka :) spennó spennó
kv, Hildur

 
template by suckmylolly.com flower brushes by gvalkyrie.deviantart.com