laugardagur, febrúar 26, 2005

að blogga eða ekki blogga

humm.......

Jú ég held að ég bloggi aðeins.

Skúli er að elda handa mér eitthvað rosalega gott. Það er saga á bakvið þessa máltíð.
Málið er að ég var á leiðinni í vinnuna með strætó og fann þá síma í einu sætinu, Ég tók síman setti hann í töskuna og hélt mína leið í vinnuna. þegar ég kem heim um kvöldið mundi ég aftur eftir símanum og skoðaði símaskránna og fann þar "pabbi", þar sem hjarta mitt er ekki stærra en í húsflugu þá þorði ég ekki að hringja sjálf. Skúli gerði það fyrir mig, ekkert mál maðurinn átti son sem hafði tínt símanum sínum og ákvað hann að sækja síman dagin eftir til Skúla í vinnuna. Þegar maðurinn kom að sækja síman lét hann Skúla hafa pening og sagði honum að eyða því ímig þar sem það var ég sem fann síman. Hann keypti í matinn handa mér og er núna að elda það :)

Já og í öðrum fréttum þá er ég búin að klippa mig stutt.

0 vinir:

 
template by suckmylolly.com flower brushes by gvalkyrie.deviantart.com