laugardagur, febrúar 19, 2005

Jæja þá er maður bara komin í helgarfrí.

Kannski maður reyni að nýta helgina til að gera eitthvað sniðugt.
� morgun fer ég til Stínu sys til að hjálpa henni að pakka, veit ekki hvort ég verð meira að pakka eða að halda skemmti dagskrá fyrir sætasta frænda í heimi, hann Hilmi littla. Um kvöldið er afmælis veisla hjá honum Haffa, hann er að vinna með mér á Amerivan Style.

Annars gerði ég ekki mikið í dag. Var að vinna í allan dag eða til 21. Þegar vinnan var búin þá fór ég að heimsækja pabba. Pabba geyið mitt er eitthvað bilaður og þurfti því að fara í viðgerð, ekkert alvarlegt en þó þarf hann að liggja fyrir í einhverjar vikur, svona til að létta honum leguna gáfum við (Mamma, Addi, Stína og ég) honum iPod og áskrift að hljóðbókum.

Pabbi er sko besti pabbi í heimi og á heiminn skilinn. Eða það finnst mér allavega.

0 vinir:

 
template by suckmylolly.com flower brushes by gvalkyrie.deviantart.com