fimmtudagur, október 19, 2006

Hipp Hipp hurrey

Fjölga á nemum í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands
Hjúkrunarnemum við Háskóla Íslands fjölgar um 25 á ári næstu ár. Þetta kemur fram í frumvarpi til fjáraukalaga. Samkvæmt frumvarpi til fjáraukalaga 2006 er lagt til að fjárframlög til Háskóla Íslands aukist um rúmlega níu milljónir króna til að standa straum af kostnaði vegna fleiri hjúkrunarfræðinema.
Ákvörðunina um aukið fé til að mennta hjúkrunarfræðinga má rekja til samkomulags sem heilbrigðis- og menntamálaráðherra gerðu um ráðstafanir til að fjölga starfandi hjúkrunarfræðingum.
Starfsmannaskortur hefur sett svip sinn á starfsemi heilbrigðisstofnana eins og Landspítala ? háskólasjúkrahús undanfarið svo sem fram kom á opinberum vettvangi fyrr á árinu. Þá strax lýsti heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra yfir því að hún hygðist gera það sem í sínu valdi stæði til að stuðla að fjölgun nema.


myspace layout

Þetta er ekkert nema gott mál. Það eru kannski einhverjir sem sjá þetta sem ekki góðan hlut, að það verði að halda laununum uppi og svona en það verður bara að viðurkennast að þó svo að það sé sjúkleg vöntun á hjúkkum þá eru launin ekki búin að hækka í samræmi við það og þá er það bara gott að fleiri hjúkkur komist á markaðinn til þess að létta á vinnuálaginu sem er á þessari stétt.

En eins og flestir vita sem mig þekkja þá er ég í Hjúkrunnarfræði við Háskólann.



0 vinir:

 
template by suckmylolly.com flower brushes by gvalkyrie.deviantart.com