föstudagur, september 08, 2006

Blogg blogg blogg

Ég hef ákveðið að halda áfram að blogga fyrir sjálfa mig líka, en ég hef dottið niðrí það far að blogga bara fyrir hann Ágústu Rós mína. Það er búið að vera nóg að gera á þessu heimili síðan Gústa litla kom, núna erum við orðin fjölskylda með 5 meðlimi.

Skuggi og Nora eru bara nokkuð sátt við Gústu, hafa ekki sínt neina tilburði til að reyna að gera henni eitthvað mein (hver veit kannski eru þau að plotta eitthvað).


Ég er að fara að byrja í skólanum aftur, skólinn er reyndar byrjaður en ég get ekki mætt í tímana fyrr en 18 sept, þá byrjar Skúli í fæðingarorlofinu sínu. Get ekki beðið eftir að byrja, kannski er það bara afþví að þá fæ ég að fara út úr húsi á þess að það taki allan daginn að plana það og svo þarf minnst klukkutíma undibúning áður en maður kemst út þessa dagana.

0 vinir:

 
template by suckmylolly.com flower brushes by gvalkyrie.deviantart.com