miðvikudagur, febrúar 09, 2005

Núna fúnkerar netið sem ég var að kaupa mér á mánudaginn, þannig að það má búast við auknum fjölda blogga hérna á þessari svo til dauðu síðu hjá mér.

Ég er semsagt flutt enn eina ferðina og líka mér bara mjög vel hérna á nýja staðnum, þarf reyndar að skipta núna um strætó á leiðinni í vinnuna en það er altílagi. Er enþá að vinna á American Style og hef ekki í hyggju enþá að breyta því neitt. Það er rosalega gott að vinna þarna, hef sjaldan kynnst svona góðum móral á vinnustað.

Annars er ekki mikið búið að gerast í mínu lífi á síðustu 2 blogg lausu mánuðum, sem sínir bara hvað maður er óáhugaverður einstaklingur.....

0 vinir:

 
template by suckmylolly.com flower brushes by gvalkyrie.deviantart.com