mánudagur, október 18, 2004

Heitasta helvíti, ég er búin að vera svo óheppin í dag og í gær þar er bara ekki venjulegt.
Byrjum á gærdeginum, hann byrjaði voða vel. Fór og hitti Adda bróður þar sem hann var í Köben, það var mjög fínt að hitta hann og fá að tjá sig á íslensku. Allavega þá tók ég lestina heim og þar sem ég er búin að nota lestarkerfið alveg slatta hérna þá var kkert mál að finna lestina, þegar lestin er búin að lestast í ca 5 min þá bilar hún. Allir skildu auðvitað hvað var að gerat af því að það byrjaði einhver kall að tala í hátalara kerfinu, ég sá bara að ALLIR fóru úr lestinni þannig að ég ákvað að fara bara út líka. Ég elti bara fólkið og sá þá að allir fóru uppí einhvern strætó, og ég, litli íslendingurinn elti bara hópinn, strætóinn var svo pakkaður að ég hef bara aldrei séð annað eins, ég er að segja ykkur það að það hefði ekki komist fyrir einn manneskja í viðbót. Við vorum í strætónum í einhverjar 30 mínútur, á endanum stoppaði hann einhverstaðar og allir ruku út og auðvitað elti ég bara eins og lítill sauður. Jæja allavega þá vorum við komin á einhverja aðra lestarstöð og þaðan tókum við lest til að komast heim. Þannig að lexían sem ég lærði hér er : “að best er bara að fylgja hópnum�.
� dag tók svo ekkert betra við, eiginlega bara miklu verra. Ég hundskaðist á lappir um 9:30 og svo svona klukkutíma seinna þá mundi ég að ég hafði ætlað að reyna að þvo þvott í dag. Klæddi mig greip lyklana að þvotta húsinu og fór þangað, pantaði mér tíma en þegar ég var að koma til baka þá áttaði ég mig á því að ég hafði gleymt húslyklunum...................
Ekki gott mál, þannig að Tobba litla þurfti að bíða þangað til að Chris kom heim. Hún kom heim 5 eða 6 tímum siðar, ég held að ég láti það kjurt að lýsa því hvað ég gerði á meðan þar sem ég held að þið mynduð bara sofna úr leiðindum. Lexían sem ég lærði hér er : “ALDREY gleyma húslyklunum þegar ég fer út úr húsi�.

Annars er voða lítið að frétta, er ekkert búin að heyra frá neinum vinnum og er bara að halda áfram að leita að vinnu. Við fórum út að djamma um helgina, það var geðveikt gaman, fórum á “Discotek� á föstudagskvöldið og svo á pöbba rölt á laugardeginum. Skemst er frá því að segja að við rákumst á Popp Tíví gæjana í bæði skiptin.

0 vinir:

 
template by suckmylolly.com flower brushes by gvalkyrie.deviantart.com