Ég er ekki búin að vera dugleg að skilja eftir skilaboð hérna og lofa ég engum bótum þar á.
Ég var að fatta það að ég var ekki búin láta vita af því að ég og aukahlutirnir erum flutt eina ferðina enn. Að þessu sinni var lendingar staðurinn Eggertsgata 8. Ég er komin aftur á stúdentagarða, þessi íbúð sem við erum í núna er minni en par-íbúðin sem ég bjó í fyrir langa löngu, arkitektin sem hannaði þessar íbúðir hefur verið á einhverju þegar hann teiknaði þær því þær eru frekar spes á ákveðinn hátt. Skal bara sína ykkur þegar þið kíkið í kaffi. Ég skráði mig á biðlista eftir íbúð í sept 2006 og fékk íbúð í ágúst 2007. Ég áttaði mig á því einn daginn að ég er búin að búa í húsum nr. 8 - 16 - 24, skondin tilviljun, eða hvað??
Þó svo að við séum flutt í 101 þá er Ágústa en þá hjá dagmömmunni sinni í 110. Mjög skemmtilegt að eyða 1,5 klukkutíma á dag í að koma barninu í vistun á meðan það eru 4 leikskólar í 800 metra radíus og þar af er einn af þeim í samahúsi og við búim í og annar nánast á svölunum okkar. Þetta stendur allt til bóta sem er voða erfitt að útskýra núna en ég skal gera það þegar málin skýrast betur.
Skólinn er alltaf jafn skemmtilegur og verknámið núna í haust var mjög skemmtilegt, ég var á smitsjúkdóma og innkyrtla deild. Próflestur er byrjaður, eins og þeir sem hafa verið og eru í skóla vita þá er hann alltaf jafn skemmtó.
Held að þetta sé bara komið í bili.
Læt eina mynd fylgja af músinni minni að knúsa bangsann sinn.
miðvikudagur, nóvember 28, 2007
Nú verða sagðar fréttir !!!
Birt af Þorbjörg kl. 20:05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

0 vinir:
Skrifa ummæli